Fréttir úr Frumleikhúsinu Keflavík
Í fyrra var ákveðið að ráðast í skrif á revíu þar sem okkur fannst mikið hafa gerst í sveitarfélaginu og því af nægu að taka. Haft var samband við meðlimi Breiðbandsins um að taka þátt í skrifum en þeir skrifuðu einnig revíuna sem sýnd var hér fyrir fjórum árum síðan. Leikfélagsdrengirnir og stjórnarmeðlimir félagsins þeir Arnar Ingi og Gustav Helgi fengu að vera með enda kom í ljós að þar voru á ferðinni öflugir, framtíðar höfundar. Áður hafði Ómar heitinn Jóhannsson skrifað revíur félagsins og má segja að hann hafi með skrifum sínum komið revíuæðinu á kortið og í minningu hans munu þær fá að lifa áfram enda alltaf afar vel sóttar af bæjarbúum. Frá upphafi kom ekki annað til greina en að fá grínleikkonuna Helgu Brögu Jónsdóttur sem leikstýru enda þekkir hún vel til eftir að hafa sett tvær af okkar vinsælustu revíum á svið. Samstarfið hefur gengið afar vel og leikarahópurinn þéttur og öflugur undir hennar stjórn. Þá fengum við einnig til liðs við okkur magadansmeyna Josy Zareen sem á og rekur magadansskóla í Reykjavík. Þið fáið svo að sjá hvernig til hefur tekist hér í kvöld.
Það er einlæg ósk okkar að bæjarbúar og aðrir nærsveitarmenn hafi gaman af en það er mest áhorfendum að þakka að leiklistarstarf fær að blómgast hér í okkar menningarbæ.
Stjórn Leikfélags Keflavíkur:
Arnar Ingi, Arnór, Guðný, Gustav Helgi, Halla Karen, Jón Bjarni og Júlíus,
Allar upplýsingar um næstu sýningar má sjá í auglýsingu og í síma 4212540.
BÆRINN BRÆÐIR ÚR SÉR
Vegna fjölda áskorana verður aukasýning föstudaginn 29. apríl kl. 20.00
Miðapantanir alla daga í síma 4212540
Sýnt er í Frumleikhúsinu Vesturbraut 17
Miðasalan opnuð kl. 19.00 sýningadagana.
Miðaverð 2.000 kr.
Nokkrar myndir úr Revíunni fengnar af síðu Víkurfrétta:






