Leikfélag Keflavíkur - Frumleikhúsið
 
 miðvikudagur 8. september 2010  
 
   Leikfélagið | Frumleikhúsið | Leikritin | Fréttir | Sagan

  

Frumleikhúsið var opnað formlega þann 4. október 1997 og síðan þá hefur verið settur á svið fjöldi leiksýninga auk annarra viðburða. Meðal annars hafa verið haldnar þar ráðstefnur, tónleikar, fundir og margt fleira.

Stóri salur Frumleikhússins rúmar 130 manns í sæti auk þess sem hægt er að fjarlægja sæti og bekki ef eftir því er óskað (*. Þegar salurinn er tekinn til leigu þá fylgir ljósa- og hljóðkerfi leikfélagsins með í leigunni án aukakostnaðar og getur leikfélagið einnig útvegað mann til að stjórna þeim kerfum. Leiga á stóra salnum er 25.000,- kr. sólarhringurinn og er það lágmarksgjald, en litli salurinn fylgir að sjálfsögðu með.

Litli salur Frumleikhússins er líka til leigu fyrir minni viðburði og í honum er 50 sæti og borð með. Í minni salnum er einnig lítill bar þar sem aðstaða er til að selja kaffi og ýmislegt fleira. Leikfélagið er þó ekki með vínveitingaleyfi. Leiga á minni salnum er 15.000,- kr. sólarhringurinn og er það lágmarksgjald.

*) Ef beðið er um að fjarlægja stóla og palla úr sal þá hækkar leigan á salnum um 10.000,- kr.

 Leikfélag Keflavíkur - Frumleikhúsið - Vesturbraut 17 - 230 Keflavík - 421 2540 - lk@lk.is